Færsluflokkur: Heimspeki

3 mánuðir eftir af árinu

1343513017974.png














Ýmsar takmarkanir munu brátt hverfa. Hægt er að fara sína leið án þess að spilla
neinu fyrir öðrum. Lokahnykkur ársins getur verið eins og að fara í lokapróf.

Undanfarið hefur orðið mikil aukning í kynskiptingum og kynleiðréttingum.

Við förum í auknum mæli eigin leiðir þrátt fyrir ýmsar mótstöður sem upp koma.
Litið er öðruvísi á hlutina. Breytingar á kerfinu og almennri hugsun eiga sér stað
smátt og smátt þar til að allt hefur verið endurnýjað. Vendipunkurinn nálgast.

Hvernig myndir þú vera ef þú mættir vera hvernig sem þú vildir vera núna?

Sýndarveruleikar eru að verða raunverulegri og raunverulegri. Eins og er þarf að
draga upp sérstök forrit oft til að vita hvort að mynd sé raunveruleg eður ei.
Það raunverulegar eru þessar tæknibrellur að verða. En hvað er raunveruleiki?

1338576233754.jpg





















Hægt er að fara mjög djúpt í þetta. Sumir halda því fram að þetta sé allt blekking
eins og í Matrix myndunum. Aðrir segja að lífið sé í raun bara annar draumur.
En ég segi hvorugt. Fyrir mér eru allir draumar eigin raunveruleikar ,en bara mis
raunverulegir. Allir hugsanlegir og óhugsanlegir raunveruleikar eru til hér og nú.

Við höfum val til að velja en gerum það oft ómeðvitað.  Breytingar taka oft tíma
á meðan yfirgengilegar takmarkanir eru í gangi. Samt geta þær líka sprungið út
á örskotstundu undan miklum þrýstingi. Ekki búast við of miklu. Engar ályktanir.
Engin loforð. Bara fylgjast vel með og taka undir þar sem við á. Engin átök þörf.

Mikið hefur átt sér stað á árinu og á margt af því eftir að koma betur fram síðar.

baekur.jpg










































Umhverfis heiminn á áttatíu dögum er sambærileg líking við það sem er eftir
þar til að aðdráttarmið 21. Desember 2012 er náð. Rétt rúmlega 80 dagar eftir.

Slíkar breytingar eiga eftir að verða á næstu fáum árum að flestir myndu ekki
trúa því nú hve mikið þetta á allt eftir að breytast. Ef við lítum á hvað hefur
breyst á síðustu 100 árum er það aðallega rafvæðingin sem hafði mest áhrif.
Hægt er að taka þetta mun lengra í þá áttina en einnig mun nú koma til mikil
hugarfarsbreyting. Í stað þess að flytja í stærri bæi og borgir eins og fyrir 100
árum eða svo mun fólk nú frekar flytjast úr þeim þar sem að internet og ýmis
annar búnaður mun gera það mun auðveldara að búa í dreifbýli. Samt mun
fólk eiga það auðveldara með að hittast og munu persónulegar samræður því
frekar eiga sér stað hjá flestum. Ríkisstjórnin mun mjög líklegast breytast einnig
til batnaðar og segja mun minna til fyrir verkum ,heldur ræða meira við aðra
hópa um hvaða fagmenn henti best til að koma hlutunum í verk og þess háttar.
Róbótar eiga eftir að leysa fólk mikið af við ýmisskonar "leiðindastörf" þar sem
að tækninni fleygir fram. Nokkrar nýstárlegar byltingar munu einnig koma fram.

Róbótar geta nú þegar hlaupið uppi hunda eða gripið fallbyssukúlur sem hefur
verið skotið úr meira en 100 metra fjarlægð. Litblindir geta heyrt í litum með
ákveðnum búnaði og hreyfiskynjarar eru notaðir í staðinn fyrir tölvumýs eða
aðrar fjarstýringar. En allt þetta er háð rafmagni og rafmagnið má rjúfa ,
nema það sé sérstaklega varið og gangi fyrir ótakmörkuðu raforkuflæði.

Það á eftir að verja heilmikið af búnaði betur en það hefur oft ekki verið gert
vegna sparsemi. Orkuauðlindir eru allstaðar. Heimurinn er gerður úr orku.
Orku getur ei verið eytt né hún sköpuð segja eðlisfræðingar. Henni er náð fram
með ýmsum leiðum. Þá er bara spurning um að finna bestu leiðirnar.


Tímasveiflur og samsvaranir

2012 á tímasveiflu-grafi


















Það er kominn tími til þess að varpa ljósi á tímasveiflurnar. Ég hef áður gert
grein fyrir þeim upp að vissu marki en líta má á þær eins og veðurspár því að
sveiflur þessar bera með sér ákveðin áhrif ,hæðir og lægðir rétt eins og sést
í veðurspám. Til eru margar gerðir af þessum sveiflum en sú tegund sem ég
geri helst grein fyrir hér mun vera Timewave Zero (Tímasveifla núll) því að
það mun vera sú sveifla sem kemur okkur mest við á þessu ári þar sem hún
endar á þeim þekkta degi tuttugasta og fyrsta desember á þessu ári.

Til eru aðrar sveiflur af svipuðum toga sem halda áfram eftir þennan dag ,
en aðdráttarmið þessarar sveiflu er sem fyrr segir 21. Desember 2012.

Nú ætla ég að gera betur grein fyrir því hvað upphæðir og lægðir þessarar
sveiflu þýða. Það er ákveðin uppbygging í sveiflunni og er hún upphaflega
reiknuð út frá samræmdum dagatölum maya og kínverja frá því fyrir fleiri
þúsund árum. Þessi dagatöl hafa verið óvenju nákvæm að því er mörgum
vísindamönnum þykir. En þau eru til komin af því að fylgst var með flæði
og áhrifum í tímans rás yfir fleiri þúsund ára tímabil og áhrifin skrifuð niður
þar til að menn fóru að sjá endurtekningar svo þeir gátu spáð fyrir um hvers
kyns áhrif myndu brátt eiga sér stað. 32 andstæður fundu þeir ,sem þýðir
64 áhrif allt í allt. Fyrir þá sem hafa meiri áhuga á þeim má leita að "I-Ching"
sem er dagatal kínverja sem stuðst var við. Það er heilmikið við þetta en
ég hef fylgst með þessari sveiflu síðan að hrunið varð 2008. Hér kemur aðal
punkturinn og útskýring mín á því hvernig þetta virkar ; þegar sveiflan er á
niðurleið á sér stað vitundarvakning ,en þegar hún er á uppleið mun vera
ákveðin uppsöfnun í gangi sem líta má á sem undirbúning.

Stóra dýfan í græna svæðinu er samsvörun við hrunið 2008 og er hægt að
finna margar samsvaranir í þessu grafi því að sveiflan er samtíðnilegt örbrot.
Grænbláa svæðið samsvarar 2009 ,bleika 2010 ,gula 2011 og rauða 2012.

timewave-zero.jpg


















Þessi mynd sýnir alla sveifluna eins og hún leggur sig en samsvarirnar eru
eins og í örbrotum og má því finna svipuð mynstur ef þysjað er inn.

Ákveðin mynstur geta einnig borið með sér sérstök áhrif sem hafa komið
við sögu áður. Til dæmis má nefna það að 2011 og 2012 líta mjög svipuð út
á sveiflunni og má því segja að ákveðin áhrifa samsvörun sé á milli þeirra.
Samsvaranir við þessar tvær má einnig finna árið 2000 og í kringum 1945.

Það gefur okkur ákveðnar hugmyndir um hverskonar áhrif þetta eru en
þar sem að 2012 er síðasta ár sveiflunnar koma fyrir áhrif frá öllum öðrum
tímum aftur og aftur með hærri tíðni þar til að "allt er að gerast" í lokin.

Sveiflan heldur í rauninni áfram eftir lokapunkt grafsins en grafið getur
ekki lengur birt okkur mynd af henni eftir það og mun orsökin líklegast
vera sú að hún sé þá ekki lengur línuleg ,heldur af hærra víddarstigi.

Eins og sést af upphaflegu myndinni mun geta átt sér stað heilmikil
vitundarvakning í byrjun aprílmánaðar sem leiðir til öfgakenndari áhrifa.
Lok mars á síðasta ári var undir svipuðum áhrifum. Mars á síðasta ári
var viðburðaríkur mánuður og Fukushima verið í Japan vakti mikil vibrögð.
Einnig komst ég að raun um ýmislegt sem setti ákveðinn svip á restina
af árinu. Sveiflan virkar fyrir áhrif á míkróskala og makróskala en líkt og
með óveður ráðum við hvort við förum út í það vel klædd eður ei.

Örbrotanir og Gullin hlutföll

Hér er eitt ákaflega mikilvægt hugtak sem nýtt er fyrir flestum en kemur
okkur öllum mikið við þó að við séum ekkert alltaf að spá í svona hluti.

Þekkt náttúrulögmál er að ákveðin mynstur og kerfi endurtaka sig
endalaust í náttúrunni ,en færri þekkja hugtakið Örbrot (Fractal) sem
á við um heildstæð sjálfs-endurkvæmnitakmörk sjálflíkra forma.

Í öðrum orðum er átt við heild sem lítur út eins og ákveðið form ,örbrot ,
sem endurspeglar sig innávið í smærri formum endalaust en líka á þann
hátt að formin tengjast í röð og reglu í samræmi við upprunalega formið.

Hver komst fyrst að þessu? http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=16580

Endalaust er hægt að kafa dýpra í Örbrot ,því í eðli sínu eru þau endalaus.
Gott dæmi um þetta er þessi þysjun í Mandelbrot örbrotið ;
http://www.youtube.com/watch?v=0jGaio87u3A

Náttúran hefur fleiri flóknar stærðfræðilegar uppbyggingar og snið sem
vert er að skoða betur og má þar nefna Fibonacci númeraraðirnar auk
hins Gullna meðal hlutfalls (Golden mean ratio) sem sést í einhverri
mynd í flestum þeim fyrirbrigðum sem koma vel fyrir útlitslega séð.

Gullna hlutfallið tekur á sig ýmsar myndir ,meðal annars gullnu vefjuna
og gullna rétthyrninginn en hlutfallið sjálft er svo reiknað á þann veg að
A er fyrir B það sama og B er fyrir C. Þetta er mikilvægt hlutfall þar sem
að DNA (DeoxyriboNucleic Acid) strengir nota það og allar lífverur jarðar
hafa því þetta hlutfall í sér. Stærð skiptir minna máli en hlutföll.

goldenratio_fractal-x_1138117.png

 

 

 

 

 

 

 
Það eru fimm form sem hafa mjög sérstæð hlutföll og voru því látin tákna
efnaeiginleikana eld ,jörð ,loft ,vatn og æðer (eða eter) en þessi form
hafa allar hliðar jafnar og einungis eins hliðar sem mynda þau.

Það eru einungis fimm form sem hafa þessa eiginleika og hér eru þau
útskýrð nánar ; http://www.youtube.com/watch?v=voUVDAgFtho
Meira hér á íslensku ; http://vefir.mh.is/thoreir/saga/platon.htm

Allir þessir þættir eru mikilvægir í því að skilja það sem á eftir kemur ,
þar sem ýmis nýyrði og nýjar greinar eru að myndast sem annars væru
heldur torskildar án þessa skilnings sem hér er hægt að ná fram.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband