Aukin Samskipti og Samtíðni

Á árinu er að spretta upp ný samskiptasíða sem líkur eru á að muni verða
betri kosturinn og næsta stóra vef fyrirbærið á eftir myspace ,facebook og
þess háttar síðum en það sem aðallega skilur þessa nýju síðu að frá hinum
er hugmyndin um að deila ágóðanum með notendum síðunnar sem hafa
verið með frá upphafi ,áður en síðan opnar formlega í apríl mánuði 2012.

Síða sem gefur peningana til fólksins í stað þess að safna því í stórfyrirtæki
auðmanna hefur ákveðna yfirburði reynist þetta satt og rétt sem vert er að
athuga en síðan mun líka bjóða uppá þjónustu til að kaupa alvöru hluti fyrir
punkta sem safnast notendum til á síðunni. Síðan kallast Wazzub.

Viðmótið virðist einfalt og það sakar varla að láta á þetta reyna.
Ef eitthvað athugavert reynist vera við starfsemi þessarar síðu mun alltaf
vera hægt að afskrá sig síðar. http://signup.wazzub.info/?lrRef=28a9a5e6

Hvað er samtíðni? (Synchronicity)

Samtíðni er ákveðin samhljómun sem myndast við aðstæður með mörgum
mismunandi hlutum sem virðast ekki tengjast neitt í fyrstu en stillast saman
á undraverðan hátt eins og röð tilviljana sem virðast gefa skýra merkingu.

Skringilegur aðdráttur er frekar ný hugsun í vísindum. Venjulega hefur fólk
hugsað sér tímann sem flæði atburða sem hver reka annan og sá atburður
sem gerðist rétt á undan þeim næsta þar með álitinn eiga hlut í "orsök"
þess atburðar ásamt öðrum undangengnum atburðum. En aðdrættir eru til
líka sem virðast toga á undan sér atburði. Sem dæmi um þetta sjónarmið
má skoða kúlu sem stillt er upp við efra yfirborðskant skálar og kúlan síðan
látin rúlla niður í skálina. Í þessu tilfelli væri botn skálarinnar mið aðdráttar.

Líta má á 21. Desember 2012 sem aðdráttarmið því þá raðast upp stjarnhnit
sem gætu haft áhrif trúi menn á stjörnuspár. Margir búast við miklu þegar
að þessi merki dagur rennur upp. Annars má einnig líta á þetta eins og
töluna tólf á klukku -nýtt tímaskeið að byrja- með annarskonar áhrifum.

Skringilegir aðdrættir eru samtíðnilegir og því er hægt að spá fyrir um ,
(upp að vissu marki) hverskyns áhrifa muni gæta þangað til að aðdrátturinn
hefur runnið út. Til að einfalda þetta má hugsa sér veðurspár og hvernig
hæðir og lægðir bera með sér ákveðin áhrif.

Heppni má kalla jákvæða samtíðni og óheppni má kalla neikvæða samtíðni.

Innsýn í samtíðnir er enn á byrjunarstigi fyrir flestum á árinu 2012 ,
en hér hef ég gert mitt besta til að gera góð skil á þessu fyrirbæri.

Vitanlega er hægt að fara mun dýpra í þetta og flækja út í hið óendanlega.

Upplýsingastreymi internetsins

Í gamalgróna kerfinu eru hugsanaferli mjög takmörkuð.
Ég vil með þessu bloggi leitast við að breikka sýn til batnaðar
og vekja upp jákvæðar umræður um breytingarnar sem í aðsigi eru.

Hópur fólks getur ekki sætt sig við það misrétti sem hefur þróast út í öfgar.

Við lifum á miklum umbreytingartímum. Afl vöðva dugir nú ei lengur eitt til.
Eins og er höfum við allt sem þarf til þess að fæða og veita húsaskjól þeim
öllum sem þess þurfa. Það er einungis kerfið sem stendur í vegi fyrir því ,
sem og ranghugsanir sem af því hafa sprottið um að lítið sé hægt að gera.

Við getum breytt því. Þetta þarf ekki að vera svona. Hægt er að rækta mat
í lóðréttum ökrum og sparast þannig mikið pláss. Til eru hús til að hýsa alla.
Vatn er vetni og súrefni sem af er ofgnótt. Rafmagn er auðvelt að fá fram.
Olía er í raun samansafn þjappaðra gasa sem safnast hafa undir yfirborði
jarðar þar sem rétt skilyrði hafa myndast. Úr olíu er plastið unnið.

Margt af þessu segja vísindamenn og eru margir góðir vísindamenn til
sem framkvæmt hafa ýmsar mikilvægar kannanir ,rannsóknir og tilraunir.

En vísindi ein og sér eru samt ekki lausnin. Hrá vísindi eru tilfinningalaus og
hlutbundin ,en tækni er hinsvegar samansafn af aðferðum og upplýsingum
ásamt öðrum tólum ,sem hægt er að nýta til að auðvelda okkur lífið.

Internetið er ein slík tækni. Með þróunninni sem á sér stað mun netið
geta opnað nýjar leiðir til þess að gera sjálfsþurftarbúskap mun fýsilegri.

Prentarar geta nú prentað út einfalda hluti úr plasti eða endurunnu efni.
Reprap er frekar einfaldur og ódýr hlutaprentari sem getur prentað út parta
af sjálfum sér sem nýtast í að byggja annað eintak af prentaranum.

Vélar eru nú óðum að taka yfir störf manna og þýðir það fyrir gamla kerfinu
aukið atvinnuleysi hjá flestum þar til fólk lærir að lifa með þessari þróun.

Í raun eru vélarnar best nýttar í að losa okkur undan störfum sem fæstir
vilja vinna við og gefa okkur góð tækifæri til að finna fljótar lausnir þegar
þess er þörf. Þar með getum við snúið okkur frekar að því sem við viljum
frekar gera ,hvað svo sem það kann að vera. Jafnvel flóknar læknisaðgerðir
er hægt að leysa með vélrænum hætti þó svo að margir vilji heldur hafa
umönnun af reyndum læknum og það ætti líka að vera frjálst val um það.

Umhverfis okkur eru efni sem eiga uppruna sinn í stjörnunum og þaðan
eru efnin í líkömum okkar einnig komin. Það má hugsa sér þetta eins og
stafrófið að munurinn á orðunum er einungis mismunandi uppröðun og
möguleg endurtekning á stöfunum sem mynda orðin.

Þannig er þetta einnig með hinn efnislega heim sem við upplifum
og ber okkur að minnast þess þegar við týnumst í ágreiningi eða öðru sem
við viljum frekar minna hafa með að gera.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband